Learn&Grow segulkubbarnir stuðla að opnum leik og efla ímyndunarafl barna. Dýrapúslpakkinn samanstendur af 40 bitum/toppum (20 dýrum) sem fara ofan á segulkubba og hægt er að tengja/púsla saman dýrum og búa til furðudýr! Toppana er hægt að nota með öllum helstu segulkubbum á markaðnum (ath að Magformers kubba er ekki hægt að nota með neinum öðrum kubbum) Learn & Grow kubbarnir eru með mjög sterkum seglum og endingagóðu plasti en eru samt merktir fyrir 3 ára og eldri vegna köfnunarhættu ef ske kynni að segull losni frá. Segulkubbarnir eru hins vegar frábært leikfang fyrir yngri börn (undir eftirliti) og allt upp að 10 ára.
Aldur: 3+
Innihald:
40 segultoppa
-20 Safaridýra bitar
-20 Húsdýra bitar