Exit Síðasta gáta prófessorins Spennandi samvinnuspil frá Thames & Kosmos fyrir 1-4 leikmenn, 12 ára og eldri. Uppáhalds fornleifafræðiprófessorinn þinn lést skyndilega en í staðinn fyrir erfðaskrá, lét hann eftir sig undarlegt verkefni sem hann vildi að þú tækir þátt í að leysa. Í umslaginu eru póstkort og skrýtnar vísbendingar, þú neyðist til að fara í alþjóðlega fjársjóðsleit. Hvað er það sem prófessorinn vildi að þú fyndir? ATH: EXIT spil er aðeins hægt að spila einu sinni. Erfiðleikastig: 3/5