Spennandi teikni-og sakamálaspil frá iello fyrir 3-8 leikmenn, 8 ára og eldri. Einn leikmaðurinn leikur fórnarlamb sem varð fyrir fólskulegri árás og getur ekki talað og reynir þess í stað að teikna upp vísbendingar fyrir rannsakendurna sem hinir leikmennirnir leika. Þeir reyna að finna sökudólginn áður en honum tekst að hylja slóð sína.