Spennandi og lymskulegur leikur fyrir 2-5 leikmenn, 10 ára og eldri. Ungi konungurinn kann ekkert að stjórna en aðalsmennirnir í kringum hann notfæra sér fávisku hans og reyna að sölsa undir sig ríkið. Leikmenn leika aðalsmennina sem reyna að koma sér í mjúkinn hjá konunginum, auka áhrif sín og auð.