Árás! Skjóttu svartálfahermönnum þínum úr valslögvunni svo þeir geti hertekið og rænt kastalann. Gull og demantar bíða þeirra sem ná bestu skotunum. En varlega! í hverju rými er eitthvað óvænt… og ekki alltaf á góðan hátt. Eftir hverja umferð, nota leikmenn ávinninginn til að kaupa sér búnað sem styrkir þá í næstu umferð. Hinn hugaðasti svartálfur mun byggja tótem sitt efst á kastalanum og sanna þar með yfirburði herforingja síns (þína!)…. þ.e.a.s. ef hann lifir árásina af. Skemmtilegt spil frá iello fyrir 2-4 leikmenn, 8 ára og eldri, sem er blanda af húmor, hæfni, áhættu og hernaðarkænsku.