Hæ, ég heiti Teddy Tomato. Veistu af hverju ég er kallaður Tómatur? Það er af því að ég verð rauður eins og tómatur þegar ég verð reiður. Twonsters eiga heima hátt upp í skýjunum þar sem þau skoppa á milli skýjahnoðra. Stundum hitta þau ekki á milli þeirra, falla þá til jarðar og lenda á trjátoppum. Þar eiga þau sér hlýleg og örugg tréhús og taka við gestum, allir eru velkomnir. Í tréhúsunum hjálpa þau krökkum að sýna tilfinningar sínar. Þau ferðast svo upp með regnbogum aftur heim til skýjanna. Ef þú rýnir til himins geturðu stundum séð móta fyrir tilfinningaskrímslunum í skýjunum. Með tilfinningaskrímslunum er auðvelt að sýna tilfinningar sínar. Ef manni líður ekki alveg nógu vel er hægt að láta aðra vita af því með því að snúa andlitinu á þeim þannig að þau gretta sig. En svo brosa þau ef manni líður vel.