Ævintýri Hróa Hattar England 1193. Nottinghamskíri er undir hæl prinsins Jóhanns og fylgismanna hans. Þið takið ykkur hlutverk Hróa Hattar og félaga hans Litla-Jóns, Maríönnu og Villa Rauða. Saman berjist þið gegn óréttlæti og uppgötvið leyndarmál. Færa má peðin um allt borðið, tala við þorpsbúa og finna hluti. Þið verðið að gæta ykkar á skósveinum fógetans. Byrjunarleikurinn hendir ykkur í djúpu laugina í fyrsta ævintýrinu. Meðfylgjandi bók fer með ykkur í gegnum spennandi söguna.