Aukastigablokk fyrir teningaspilið Twice as Clever. Leikurinn fer þannig fram: Leikmaður kastar teningunum. Hann velur einn þeirra, leggur á reit á leikblaðinu sínu, skráir niður útkomuna og litinn á stigablaðið. Teningarnir með lægri útkomu en sá sem var valinn, eru settir á bakkann í kassanum. Þetta er síðan endurtekið tvisvar í viðbót. Þegar allir hafa gert slíkt hið sama, eru stigin talin og stigahæsti leikmaðurinn sigrar.