Spennandi þróunarleikur frá Huch! Fyrir 2-4 leikmenn, 12 ára og eldri. Leikurinn gerist í Róm til forna, í keisaratíð Trajanusar (98 – 117 e.Kr.) og leikmenn eru í hlutverkum aðalsmanna sem reyna að auka umsvif sín og áhrif á ýmsum sviðum stórveldisins, s.s. pólitískum áhrifum, viðskiptum með munaðarvörur, hervaldi o.fl. Spilað er yfir 4 ársfjórðunga sem hver samanstendur af 4 umferðum þar sem leikmenn þurfa að fylgja ákveðnum skrefum til að reyna að vinna sér inn sigurstig.