Ferðaútgáfa af skemmtilegu verðlaunaspili Þægilegt álbox og minna leikborð. Töframennirnir verða að rannsaka töfra völundarhúsið gaumgæfilega. Þeir þurfa að leysa mikilvægt verkefni – leitina að töfratáknunum! Þetta væri nú ekki svo flókið ef leiðir myndu ekki lokast og breytast eins hendi sé veifað. Leikmenn reyna að komast í gegnum töfra völundarhúsið með töfratáknunum sínum og verða fyrstir til að safna 5 táknum. Skemmtilegt spil fyrir 2-4 leikmenn, 5 ára og eldri.