Sirkus Araminis Sirkusinn er á leið til næstu borgar og þú vilt koma dýrunum sem fyrst í lestina. Veldu dýraspil og notaðu þau til að ná í lestarvagna sem síðan eru festir aftan í lestina. Hver vagn gefur 1-4 stig. Því fleiri vögnum sem þú bætir við lestina, því fleiri stig færðu. Sams konar leikur og Yardmaster en með öðru vísi útfærslu. Fyrir 2-4 leikmenn, 8 ára og eldri.