Codenames Duet XXL er eins og Codenames Duet nema stærra. Spjöldin eru stærri og auðveldara að lesa á en þetta snýst um þetta: Samvinnuútgáfa af þessu skemmtilega og margverðlaunaða orðaspili. Í Codenames Duet leika leikmenn enn njósnara sem leita að samstarfsfólki sínu undir dulnefnum þeirra. Munurinn er sá að nú vinna allir saman í stað þess að lið keppi hvort á móti öðru. Njósnameistarar hvors liðsins geta borið kennsl á njósnarana og gefa liðinu sínu vísbendingar til að leiða það að réttu dulnefnunum sem fyrr. En gætið ykkar, leigumorðinginn gæti leynst á bak við eitt þeirra! Spilið hentar sérstaklega vel fyrir tveggja manna leik. Frábær skemmtun fyrir 2-4 leikmenn, 11 ára og eldri. ATH! Spilið er á ensku.