Ævintýrakast Skemmtilegur teninga-og samvinnuleikur fyrir 2-4 leikmenn, 10 ára og eldri, frá Thames&Kosmos. Gamla konungsríkið er í hættu, óvinaherir sækja að úr öllum áttum og Meistari skugganna fer fyrir þeim. Hann vill steypa ríkinu í eilíft myrkur. Þið verðið að vinna saman til að finna alla máttarsteinana og bjarga ríkinu. Ævintýralegur teningaleikur þar sem leikmenn standa og falla saman.