Beach Picnic Kitchen Skemmtilegt strandleikfang úr Beach Picnic vörulínunni frá Klein. Fata sem geymir allt innihaldið en fötunni má hvolfa og þá breytist hún í lítið ferðaleikfangaeldhús sem hentar vel á ströndinni eða í sandkassanum. Í eldhúsinu eru vaskur með krana (sem þarf að festa við), eldavélarhella, statíf fyrir ausu og spaða, ofn og hnappar, auk þess sem kökuform fylgir. Klein er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu leikfanga í Evrópu, staðsett í Þýskalandi. Þeirra stefna er að framleiða leikföng sem búa til umhverfi fyrir börnin sem stuðlar að þroska þeirra, og örvar sérstaklega vitsmunaþroska, félagsfærni og hagnýtan lærdóm í gegnum þykistuleik.