Coffee Shop Vandað og skemmtilegt leikfangasett frá Klein fyrir unga viðskiptajöfra sem dreymir um að opna sitt eigið kaffihús. Inniheldur kaffivél sem má hella vatni í til að ‚laga kaffi‘, ásamt bakkelsi í kökuhillu og kortalesara til að afgreiða ‚viðskiptavini‘. Frábært í leikfangasett í þykistuleikinn sem þroskar börn og eflir hugarflug þeirra.