Glæsilegt 1000 bita púsl með mynd af hinum glæsilega Sveinstindi. Fallegt púsl með mynd sem tekin var af Sveinstindi í austurátt, yfir hálendið nálægt jökulrönd Vatnajökuls. Frá Sveinstindi er einstakt útsýni yfir umhverfi Skaftár, svæði sem er meðal fegurstu staða á öræfum landsins. Svæðið stendur í um 500 m hæð yfir sjávarmáli og er sannkölluð vin í eyðimörkinni en fagrar gróðurvinjar liggja meðfram lækjum, ám og vötnum.