Söguteningar Rorys Ævintýri Stórskemmtilegt söguspil fyrir hugmyndaríkt fólk. Leikmenn skiptast á að kasta teningunum og búa til sögur og nota til þess myndirnar sem koma upp á teningunum. Teningarnir sýna myndir sem gefa leikmönnum innblástur að sögum um ótrúleg ævintýri í ævintýraheimi. Hægt að spila sjálfstætt eða sem viðbót við önnur Rory‘s Story Cubes spil. Þegar spilað er með vinum og fjölskyldu er best að skiptast á hlutverki sögumannsins. Sögumaðurinn kastar öllum 9 teningunum. Hann byrjar á ‚ Einu sinni var ‘ og segir sögu sem tengir saman allar 9 myndirnar sem komu upp á teningunum. Hann byrjar á fyrstu myndinni sem grípur athygli hans. Notið þrjá teninga fyrir upphaf, þrjá fyrir miðju og þrjá fyrir sögulok. Það er aðeins ein regla: það eru engin röng svör. Notið ímyndunaraflið. Fólk um allan heim finnur eigin leiðir til að spila með Rory‘s Story Cubes söguteningunum. Hvaða skemmtilegu leiðir munið þið uppgötva?