SKEWB ULTIMATE ÞRAUTIR 7+ Lýsing Nánari upplýsingar Ítarefni Fallegur þrautaþjarkur! Glæsilegur þrautateningur sem svipar til hins klassíska Rubiks töfratengings að því leytinu til að takmarkið er að enda með hverja hlið í einum lit. Teningurinn hefur hvorki meira né minna en 12 hliðar og sex liti og veitir því hinum allreyndustu þrautaþjörkum veglega og skemmtilega áskorun. Flottur þrautateningur sem kemur á óvart! Hentar sérlega vel fyrir þá sem hrifnir eru af skemmtilegum heilabrotum og eru á höttunum eftir nýrri ögrun. Tilvalið til að taka með í ferðalagið og dunda sér við í löngum bílferðum, flugvélinni, sumarbústaðnum eða á sundlaugarbakkanum.