Krefjandi útgáfa af hinu klassíska Domino, með þríhyrningslaga kubbum og þremur tölum á hverjum kubb. Tvær þeirra þurfa að stemma við tölurnar á næsta kubb. Tölurnar segja til um stigafjölda sem leikmaður vinnur sér inn. Sá sem skorar flest stigin og losnar fyrst við alla kubbana sína vinnur. Fjölbreytilegur og skemmtilegur leikur fyrir 1-4 leikmenn.