Pandemic viðbót: Neyðarástand Viðbót við hið geysivinsæla samvinnuborðspil Pandemic fyrir 2-4 leikmenn. Ertu tilbúinn í næsta stig á eftir Á ystu nöf og Á rannsóknarstöðinni? Í viðbótinni Neyðarástand fara leikmenn sem fyrr í hlutverk sóttvarnarteymis og reyna að halda banvænum sjúkdómum í skefjum. Hlutverkum og viðburðum hefur verið bætt við og leikmenn þurfa að berjast við einkar illvíga sjúkdóma sem geta borist frá dýrum í mannfólk og erfitt er að hemja. Þessi viðbót er aðeins fyrir þá djörfustu. *Athugið: Þetta er ekki sjálfstætt spil, heldur viðbót sem spilast með Pandemic grunnspili og viðbótunum Á ystu nöf og Á rannsóknarstöðinni.