Stranglega bannað börnum! Eruð þið tilbúin til að kafa ofan í myrkustu afkima huga ykkar? Codenames Undirheimar er eins og grunnspilið Codenames að því leyti að leikmenn skipta sér í lið og leika njósnameistara sem gefa vísbendingar og njósnara sem reyna að giska á rétt orð. Munurinn er sá að Codenames Undirheimar inniheldur dulnefni sem eru alls ekki við hæfi barna undir 18 ára aldri! Vísbendingar njósnameistarans og hugmyndaflug njósnarana þurfa að leggjast á lægsta plan þar sem báðir aðilar geta skoðað undirheima huga sinna og samfélagsins. Látið fúkyrði og villtar fantasíur fljúga og gefið ykkur lausan tauminn með Codenames Undirheimar! Hentar 4-8 leikmönnum, 18 ára og eldri.