Smækkuð útgáfa, sama skemmtun! Hið stórskemmtilega Kakkalakkasalat í íslenskri vasaútgáfu! Hraður og gómsætur grænmetisleikur með spilum. Leikmenn reyna að búa til litríkt salat á eins stuttum tíma og mögulegt er með því að leggja niður grænmetisspjöld til skiptis. Um leið og spjöldin eru lögð niður verður að segja „rétt“ nafn á grænmetinu (blómkál, kálhaus, paprika, tómatur). Eitt skakkt orð, ahhh, úhhh eða hik sem varir lengur en 3 sekúndur getur orðið dýrkeypt. En gættu þín, aðeins sá leikmaður sem getur fljótt og örugglega skipt á milli sannmælisins og (neyðar-) lyginnar vinnur!