Top Trumps Shopkins Leiktu og lærðu! Skemmtilegt Top Trumps spil með Búðarbobbaþema. Leikföngin Búðarbobbar (Shopkins) eru afar vinsæl og sýna ýmsar vörur úr matvöruverslun persónugerðar á skemmtilegan hátt. Leikmenn keppast um að ná sem flestum stigum með því að finna hæsta gildið fyrir staðreyndir á spilunum sínum. Staðreyndirnar eru fjör, krútt, vinsældir, tómstundagildi og Top Trumps einkunn. Einfalt og skemmtilegt spil fyrir fólk á öllum aldri.