Þorir þú inn fyrir þröskuldinn á draugasetrinu? Skemmtilegt samvinnuspil fyrir 2-7 leikmenn sem gerist á 3. áratug síðustu aldar. Einn leikmaður fer í hlutverk draugs sem hjálpar hinum leikmönnunum, sem leika miðla, að hafa uppi á morðingja sínum. Til þess sendir draugurinn miðlunum sýnir og miðlarnir reyna að giska á morðingjann, morðvopnið og staðsetningu glæpsins út frá myndrænum vísbendingum. Allir leikmenn hafa sama markmið og sigra eða tapa saman. Frábært samvinnuspil sem unnið hefur til fjölda verðlauna.